Þjónustustefna 365 miðla
365 miðlar eru framsækið þjónustufyrirtæki á sviði skemmtunar, fræðslu og fréttamiðlunar.
Markmiðið með þjónustustefnu 365 miðla er að skapa fyrirtækinu sérstöðu á fjölmiðlamarkaði, sem felur m.a. í sér að veita viðskiptavinum ávallt betri þjónustu en keppinautarnir. Samkeppnisforskot 365 byggir á framúrskarandi þjónustu,sem miðar að því skila aukinni ánægju og tryggð viðskiptavina og samstarfsaðila, auka markaðshlutdeild og arðsemi fyrirtækisins. Orðið „viðskiptavinir“ í þessari stefnu á við um bæði ytri og innri viðskiptavini. Innri viðskiptavinir eru allir starfsmenn 365 miðla.
Við viljum ávallt vera leiðandi á fjölmiðlamarkaði og nýta þau sóknarfæri sem gefast í gegnum þá miðla sem fyrirtækið hefur uppá að bjóða Það gerum við með því að vinna í einu og öllu samkvæmt gildum fyrirtækisins sem eru;
- Sköpunargleði
- Samstarf
- Áreiðanleiki
- Arðsemi
Við leggjum metnað í að veita góða þjónustu sem kallar á virka þátttöku og samstarf allra starfsmanna, áreiðanleika, frumkvæði, sköpunargleði en ekki síður kjark og vilja til að vera skrefi á undan í þjónustu við viðskiptavini. Við vinnum saman sem einn hópur og byggjum á gagnkvæmu trausti til að tryggja hagsmuni og þarfir viðskiptavina okkar. Allt sem við tökum okkur fyrir hendur þarf að skila árangri, hvort sem um viðskiptavininn eða 365 miðla er að ræða.
Til þess að meta árangur og kanna þarfir okkar viðskiptavina metum við reglulega hug þeirra til þjónustunnar. Í greiningu á þörfum viðskiptavina 365 höfum við komið auga á eftirfarandi áhersluatriði.
- Framúrskarandi þjónusta
- Áreiðanleiki
- Þekking og þróun
- Ásýnd og umhverfi
- Góð samskipti
Áhersluatriðin er grunnur í þjónustustefnu 365 miðla og þeir þættir sem allir starfsmenn 365 miðla tileinka sér og fylgja eftir.
Þau atriði sem 365 vill kanna og fá viðskiptavini til þess að leggja mat á eru:
- Gæði þjónustunnar
- Endurgjöf um innihald efnis
- Endurgjöf um framsetningu efnis
Framúrskarandi þjónusta
Við bregðumst hratt og vel við erindum viðskiptavina til þess að þeir upplifi faglega og trausta þjónustu. Við höfum þekkingu og skilning á þörfum þeirra og sýnum frumkvæði í að mæta þeim.
Leiðir:
- Við sýnum viðskiptavinum strax athygli, hlustum og greinum þarfir þeirra.
- Við sinnum viðskiptavinum af jákvæðni og virðingu en ávalt skal hafa samskiptareglur 365 í huga.
- Við veitum viðskiptavinum heiðarlega ráðgjöf byggða á réttum upplýsingum.
- Við sýnum frumkvæði og höfum samband við viðskiptavininn að fyrra bragði ef þörf er á.
- Við sýnum frumkvæði í því að afla okkur upplýsinga um þjónustu og starfsemi fyrirtækisins.
- Við höfum umboð til að afgreiða erindi viðskiptavina er varða okkar starfssvið.
- Við fylgjum öllum okkar málum eftir gagnvart viðskiptavinum og tryggjum að þau séu kláruð.
- Við höfum frumkvæði að tillögum um breytt verklag til hagsbóta fyrir okkar viðskiptavini.
Áreiðanleiki
Sjá samskiptareglur í starfsmannahandbók 365 miðla
Við erum áreiðanleg í samskiptum okkar við viðskiptavini og veitum þeim heiðarlegar upplýsingar. Þannig hámörkum við gæði þjónustunnar og stuðlum að langtíma viðskiptasamböndum.
Leiðir:
- Þjónusta okkar á að vera vel skilgreind til þess að við getum veitt viðskiptavinum nákvæmar og réttar upplýsingar.
- Aðgengi viðskiptavina að starfsfólki á að vera gott.
- Við svörum erindum innan 2 daga og afgreiðum mál viðskiptavina og samstarfsaðila eins fljótt og hægt er og stöndum við gefin loforð.
- Við látum viðskiptavini vita af fjarveru,breyttu starfssviði og starfslokum. Notum “out of office reply” þegar það á við.
- Allar upplýsingar sem hægt er að nálgast á ytri og innri vef fyrirtækisins verða ávallt að vera réttar og innihaldanýjustu upplýsingar.
- Við tökum ábyrgð á mistökum og leiðréttum strax.
- Við þökkum fyrir ábendingar/kvartanir og leitum lausna og tryggjum markvissa úrvinnslu og eftirfylgni.
- Við lítum á ábendingar og kvartanir sem tækifæri til að gera betur.
- Við förum með allar trúnaðarupplýsingará viðeigandi hátt.
Þekking og þróun
365 miðlar leggur metnað í að starfsmenn búi yfir góðri þekkingu á þörfum viðskiptavina okkar og hvernig þeim verði mætt með þjónustu 365.
Leiðir:
- Við sýnum nýjum starfsmönnum, áhuga, umhyggju og þjálfum þá í starfi samkvæmt vinnuferlunum.
- 365 leggur metnað sinn í að viðhalda þekkingu og þróun starfsmanna.
- Við leggjum metnað okkar í að hafa góða þekkingu á vörum og þjónustu 365.
- Við kynnum okkur þjónustu samkeppnisaðila.
- Við sýnum frumkvæði í því að afla okkur upplýsinga og þekkingar á vinnuferlum, verklagi og upplýsingakerfum fyrirtækisins.
- Við stuðlum að markvissum samskiptum á milli deilda/sviða til þess að tryggja þekkingu og upplýsingagjöf á milli starfsmanna.
- 365 býður starfsmönnum tækifæri til virkrar starfsþróunar og kynna okkur önnur störf innan 365.
- Hver starfsmaður er ábyrgur fyrir að viðhalda og byggja upp eigin þekkingu og starfsþróun.
Ásýnd og umhverfi
Við leggjum metnað okkar í að halda vinnuaðstöðu snyrtilegri og aðlaðandi. Þannig stuðlum að jákvæðri upplifun viðskiptavina.
Leiðir:
- Við leggjum metnað í að starfsumhverfi sé snyrtilegt og gengið sé vel um húsnæði og vinnuumhverfi.
- Við göngum vel um sameiginleg rými, svo sem fundarherbergi, mötuneyti og kaffistofu.
- Starfsmenn í framlínu eru ekki með matvæli eða sælgæti í augsýn viðskiptavina. (Nema við ætlum að bjóða með okkur!)
- Kynningarefni og eyðublöð fyrir viðskiptavini eru aðgengileg.
- Við setjum allt efni, þar með talið tölvupóst, fram með samræmdum og einföldum hætti og á faglegan hátt.
- Við reykjum ekki nema á þeim svæðum sem skilgreind hafa verið.
Góð samskipti
Samskipti okkar einkennast af gildum 365; sköpunargleði, samstarfi, áreiðanleika og arðsemi auk þess sem jákvæðni og frumkvæði er ríkur þáttur í samskiptum starfsmanna 365.
Leiðir:
- Við hrósum hvert öðru fyrir vel unnin störf.
- Við treystum hvert öðru til þess að fylgja hlutunum eftir og standa við gefin loforð.
- Við gefum hvert öðru hreinskilna og uppbyggilega endurgjöf.
- Við ræðum ágreiningsefni á skynsamlegan hátt og leitum lausna.
- Við bjóðum samstarfsfólki aðstoð þegar þess er þörf og veitum aðstoð þegar til okkar er leitað.
- Við stuðlum að góðri samvinnu milli starfssviða 365 og erum vakandi yfir hagsmunum og ábendingum milli starfseininga.
- Við leggjum áherslu á góð samskipti við okkar milliliði með markvissu upplýsingaflæði og endurgjöf á þeirra frammistöðu.
- Við leggjum áherslu á vel uppfærðar og aðgengilegar upplýsingar um verkaskiptingu starfsmanna (t.d. á innra neti).
- Við bætum þjónustustig liðsheildarinnar með því að láta móttöku vita af fjarveru okkar og tilnefna staðgengla okkar.
- Við erum ávallt meðvituð um að velgengni 365 grundvallast fyrst og fremst á ánægju viðskiptavina okkar.