Breytingar á áskriftarverði
Reykjavík, 3.desember 2011.
Þann 3.janúar nk. tekur gildi breytt verðskrá fyrir Stöð 2, Stöð 2 Sport, Stöð 2 Sport 2 og Stöð 2 Fjölvarp. Grunnverð áskriftar að Stöð 2, Stöð 2 Sport og Stöð 2 Sport 2 hækkar um kr. 200 en grunnverð allra Fjölvarpspakka hækkar um kr. 100. Hækkun áskriftarverðs til þeirra sem njóta bestu vildarkjara verður kr. 140 á Stöð 2, Stöð 2 Sport og Stöð 2 Sport 2 og kr. 70 á öllum Fjölvarpspökkum. Því ræður að 90 til 95% áskrifenda Stöðvar 2 og systurstöðva njóta stigvaxandi afsláttar, sem nemur 5 til 30%, eftir fjölda stöðva í áskrift. Þá er ótalin punktasöfnun sem nemur 5% af verði áskriftar en punkta er m.a. hægt að nota til áskriftarkaupa.
Þeir sem njóta bestu vildarkjara fá Stöð 2 frá kr. 5.383 og Stöð 2 Sport og Sport 2 frá kr. 4.704 og kr. 4.778 á mánuði háð því hversu margar stöðvar þeir eru með í áskrift.
Ástæður verðhækkana má rekja til almennra verðhækkana og aukinnar verðbólgu.