Um þáttinn

Hawthorne er bandarísk þáttaröð þar sem Jada Pinkett Smith er í aðalhlutverki en hún er auk þess aðalframleiðandi þáttanna en höfundur þeirra er Emmy-verðlaunahafinn John Masius (St. Elsewhere, Providence). Þættirnir fjalla um hjúkrunarfræðinga og lækna í borginni Richmond í Virginíu. Christina Hawthorne er hjúkrunarfræðingur sem lifir fyrir starfið og leggur allt í sölurnar fyrir sjúklinga sína. Líf hennar er ekki dans á rósum og hún hefur þurft að takast á við uppreisnargjarna dóttur og mikla sorg eftir að hafa misst eiginmann sinn. En lífið heldur áfram og Christina leitar hamingjunnar með myndarlegum skurðlækni, sem Michael Vartan leikur.

Drama
Þáttaröð: 3
Fjöldi þátta: 10
Aðalhlutverk: Jada Pinkett Smith, Michael Vartan, Suleka Mathew, Hannah Hodson, Vanessa Lengies og Marc Anthony.
Um þáttinn á Wikipedia
Um þáttinn á IMDB
Um þáttinn á TV.com

Hér erum við líka

Þú þarft að hafa Flash uppsett til að geta horft á sýnishorn og myndbönd.

Sækja Flash