Haldið verður áfram þar sem frá var horfið þegar Sarah Linden reynir að komast til botns í morðmáli sem flækist sífellt. Unglingsstúlkan Rosie Larsen var myrt og nú beinast öll spjót að stjórnmálamanninum Darren Richmond. Málið er þó langt frá því að vera upplýst og spennan magnast með hverjum þætti. Sífellt koma nýjar upplýsingar fram í dagsljósið sem koma rannsóknarlögreglumönnunum á mismunandi slóðir.
Fyrsta þáttaröðin af The Killing var tilnefnd til sex Emmy-verðlauna, þar á meðal fyrir aðalhlutverk (Mireille Enos) og aukahlutverk (Joel Kinnaman og Michelle Forbes). Stöð 2 sýnir The Killing aðeins örfáum vikum á eftir frumsýningu þáttanna í bandarísku sjónvarpi.