„Ávanabindandi“
The New York Times
„Betri en Gossip Girl“
Philadelphia Inquirer
Nýjasta þáttaröðin frá framleiðendum Gosspi Girl reyndist ein sú allra heitasta í sumar – sería sem lýst hefur verið sem Desperate Housewives fyrir yngri áhorfendur og Gossip Girl mætir Twin Peaks. Þessir dramatísku og alvarlega ávanabindandi spennuþættir eru byggðir á metsölubókum eftir Söru Shepard og fjalla um fjórar vinkonur sem þurfa að snúa bökum saman til að geta varðveitt skelfilegt leyndarmál.
Þáttaröðin er uppfull af frábærri nýrri tónlist og er þegar farin að leggja línurnar í tískunni enda aðalleikonurnar komnar í hóp eftirsóttustu forsíðustúlkna allra helstu tímarita vestanhafs.