Mér er gamanmál

Hefst 19. september

Frímann Gunnarsson, meistari mannlegra samskipta, fræðir nágrannalönd okkar um sanna kímni í nýrri heimildarseríu.
 

Um þáttinn

• Meistaradeildin í gríni er hafin og Frímann Gunnarsson er dómarinn ... eða kannski frekar boltinn
• Borgarstjórinn Gnarr sýnir á sér áður óþekkta hlið – og það miður fallega
• Casper í Klovn hefur lent í mörgu – en verður aldrei aftur litinn sömu augum
• Frímann gerir merka uppgötvun þegar hann sýnir og sannar að það er til fyndinn Norðmaður
• Svíar kynna til sögunnar Björn Borg og Ingemar Stenmark grínsins
• Finnland verður hér eftir kallað Fyndland
• Breskt grín er ekki bara Mr. Bean og Benny Hill


Ný íslensk gamanþáttaröð – alveg einstök í sinni röð. Þar ferðast lífskúnstnerinn, fræðimaðurinn, heimsborgarinn og sjónvarpsmaðurinn ástsæli Frímann Gunnarsson um heiminn, eða þann hluta sem hann hefur í mestu metum, Norðurlöndin og Bretland. Tilgangur þessarar rannsóknarferðar er að finna það allra besta sem gerist í húmor og hafa upp á fremstu grínurum sem fyrirfinnast í þessum merku menningarsamfélögum. Mætti því orða það svo að Frímann sé að efna til Meistaradeildar í gríni.

Vandinn er bara sá að það finnst vart maður sem er verri til þess falinn að fjalla um grín en Frímann – enda maðurinn húmorsnauður með öllu. En Frímann er fagmaður og tókst að hafa upp á helstu kanónum grínheimsins, frægustu og virtustu grínistum Norðurlanda og þótt víðar væri leitað. Þetta eru snillingar á borð við Frank Hvam í Danmörku, Jón Gnarr á Íslandi, Johan Glans í Svíþjóð, Dagfinn Lyngbo í Noregi og André Wickström í Finnlandi. Að sjálfsögðu stóðst Frímann svo ekki mátið og brá sér til fyrirheitna landsins Bretlands í þeim tilgangi að rannsaka hvort norræni húmorinn standist samanburðinn við þann göfuga breska og einnig í þeirri von að hitta fyrir eitthvert af sínum helstu átrúnaðargoðum þegar kemur að sannri kómedíu – en verður svo að gera sér að góðu hinn annars bráðfyndna og velkunna Matt Berry.

Í stuttu máli fór ekkert eins og Frímann áætlaði.

Næsti þáttur

Hefst 19. september

Sýnishorn

Sýnishorn af Mér er gamanmál

Mér er gamanmál sýnishorn

Lengd:
Spila myndskeið
Footer stuff g sdgsg d
Agasgasgasdg  Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi

Þú þarft að hafa Flash uppsett til að geta horft á sýnishorn og myndbönd.

Sækja Flash