Masterchef

Hefst 30. september

Gordon Ramsy leitar að besta áhugakokki Bandaríkjanna
 

Um þáttinn

Eftir að hafa gert allt vitlaust í Hell´s Kitchen, snýr einn vinsælasti kokkur heims, Gordon Ramsey, aftur í sjónvarpið í nýrri þáttaröð þar sem hann leitar að besta áhugakokki Bandaríkjanna.

Keppendur í þættinum munu fá leiðsögn í eldhúsinu frá Gordon Ramsey sem mun láta allt flakka eins og honum einum er lagið. Auk þess mun Ramsey dæma frammistöðu keppenda og þiggja aðstoð frá Joe Bastianich, eiganda þekktasta ítalska veitingastaðar í Bandaríkjunum og Graham Elliot, yngsta fjögurra stjörnu kokkinum í Bandaríkjunum.

Keppendurnir munu þurfa að leysa ýmsar krefjandi þrautir þar sem markmiðið er að kanna þekkingu þeirra á matvælum, bragðskyn, ástríðu og kunnáttu inni í eldhúsinu og utan þess. Eftir því sem líður á þáttaröðina fækkar í keppendahópnum og pressan á þá sem eftir standa eykst verulega.

Vinningshafinn hlýtur 250 þúsund dollara í verðlaunafé.

Næsti þáttur

Hefst í haust

Sýnishorn

Sýnishorn af Masterchef

Masterchef sýnishorn

Lengd:
Spila myndskeið
Footer stuff g sdgsg d
Agasgasgasdg  Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi

Þú þarft að hafa Flash uppsett til að geta horft á sýnishorn og myndbönd.

Sækja Flash