The Event

Hefst í haust á Stöð 2

Frá framleiðendum 24 og The 4400 kemur nýr magnaður spennuþáttur.
 

Um þáttinn

Það er samdóma álit sérfræðinga í Bandaríkjunum að The Event sé ein allra áhugaverðasta nýja þáttaröðin sem hefur göngu sína í haust. Því þarf eftirvæntingin og allt umstangið í kringum þáttaröðina vart að koma á óvart. Mikið kapp hefur verið lagt á að þættirnir leki ekki út og að ekkert spyrjist út um efni þeirra og framvindu. Hér er nefnilega á ferð nýr samsæristryllir af bestu gerð – nokkurs konar blanda af Lost og 24 en einn aðalframleiðandi þáttanna var einmitt aðalframleiðandi 24. Þættirnir fjalla um venjulegan ungan mann sem lendir í þeirri skelfilegu lífsreynslu að kærustu hans er rænt og hann er grunaður um að hafa myrt hana. Hann leggur því á flótta, staðráðinn í að sanna sakleysi sitt og finna sína heittelskuðu en áður en hann veit af er hann flæktur í meiriháttar samsæri gegn forseta Bandaríkjanna og veit orðið meira en hann kærir sig um. The Event hefur göngu sína á NBC sjónvarpsstöðinni 20. september og verða þættirnir því aðeins vikugamlir þegar þeir eru sýndir á Stöð 2 – sem er einsdæmi.

Næsti þáttur

Hefst í september

Sýnishorn

Sýnishorn af The Event

The Event sýnishorn

Lengd:
Spila myndskeið
Footer stuff g sdgsg d
Agasgasgasdg  Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi

Þú þarft að hafa Flash uppsett til að geta horft á sýnishorn og myndbönd.

Sækja Flash