Ameríski draumurinn

Föstudaga kl 20:10

Sveppi og Villi keppa við Audda og Gilz í æsilegum kappakstri þvert yfir Bandaríkin
 

Um þáttinn

  • Auddi og Sveppi í æsilegu kapphlaupi yfir Bandaríkin þver og endilöng
  • Egill Gilzenegger er félagi Audda
  • Villi Naglbítur er félagi Sveppa

Síðastliðið haust ákváðu þeir Auddi og Sveppi að etja kapp hvor við annan í nýstárlegri keppni – fara í kapp hringinn í kringum landið – hvor sinn hringinn. Þetta keppni vakti mikla athygli, fékk gríðarlega mikið áhorf og átti eftir að draga dilk á eftir sér. Kappið varð nefnilega kveikjan að nýrri og aldeilis ferskri íslenskri skemmtiþáttaröð þar sem þeir félagar setja markið ennþá hærra – eins og þeim einum er lagið. Nú dugir ekki lengur eldgamla Ísafold – sama hversu ástkær fósturmold hún er – heldur hafa þeir félagar haldið í víking og það til vesturheims, eins og frændi þeirra Leifur gerði forðum.

Með þessum sönnu nútímavíkingum í för eru fóstbræður þeirra og lagsmenn, þeir Egill Gilzenegger og Villi Naglbítur. Verður skipan liða sú sama og í fyrra kapphlaupi, Gilz verður með Audda og Villi með Sveppa. Munu liðin tvö leggja af stað á sama tíma hvort frá sínum staðnum, annað frá Orlando í austri, hitt frá Seattle í vestri, og mun það lið sem fyrr nær til Mall of America í Minneapolis bera sigur úr býtum. Til að gera keppnina ennþá skemmtilegri munu liðin glíma við stórskemmtilegar þrautir á leiðinni og fá stig fyrir.

Ameríski draumurinn er fyrsti alvörusjónvarpsviðburður vetrarins 2010-2011 og bendir margt til þess að hann eigi einnig eftir að verða sá allra eftirminnilegasti.

Næsti þáttur

föstudagur 10. sep. kl. 20:10

4. þáttur af 6

Hörkuspennandi og sprenghlægilegir þættir með Audda og Sveppa í æsilegu kapphlaupi yfir Bandaríkin þver og endilöng. Þeim til aðstoðar í ferðinni eru þeir Egill Gilzenegger og Villi Naglbítur.

Endursýnt

fimmtudagur kl. 23:10

Sýnishorn

Sýnishorn af Ameríski draumurinn

Ameríski draumurinn sýnishorn

Lengd:
Spila myndskeið
Footer stuff g sdgsg d
Agasgasgasdg  Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi

Þú þarft að hafa Flash uppsett til að geta horft á sýnishorn og myndbönd.

Sækja Flash