Steindi jr. er nýjasta stjarnan í íslensku gríni. Eins og þruma úr heiðskíru lofti skaut hann upp kollinum á síðasta ári með einstaklega frumlegum, ferskum og drepfyndnum sketsum sem fóru um netheima eins og eldur í sinu og skildu þjóðina eftir í krampakasti með tvær stórar spurningar á vörunum: hver er þessi drengur og hvenær verður hægt að sjá meira af honum.
Svarið er komið. Þetta er Mosfellingurinn Steindi jr. og Stöð 2 mun færa okkur meira af þessu ferska gríni í nýjum sketsaþætti þar sem Steindi verður að sjálfsögðu aðalgrínið en hann nýtur einnig stuðnings frá heilum haug af þjóðþekktum Íslendingum, jafnt þeim sem þegar hafa getið sér gott orð í gríninu og hinum sem þekktir eru fyrir allt annað en að leika og grínast.
Steindi jr. verður á allra vörum í allt sumar ... og miklu lengur en það.